Tuesday, May 01, 2007

Útskriftar og eldavélarvirkniboð

Jæja mí darlings, loksins er mín fína eldavél komin í gagnið og er ég að hugsa um að vígja hana með trompi næsta laugardag kl 20. Ég veit að þið komist allar nema Sara okkar,, en við bara endurtökum leikinn um leið og hún birtist á klakanum. Í staðinn fyirir dr Söru þá mun jafnmikil perla koma í hennar stað en það er hún Loftkastala Signý. Ég mun gera mitt besta að brenna ekki matinn sem ég er ekki búin að ákveða hver verður...


PS.. þetta er Tinna í uniforminu sínu á útskriftinni.. Hún er þarna búin að taka af sér hattinn og er það einkun af því sonur hennar skellti uppúr þegar hann leit hana augum í dressinu,,, og sagði "mamma hvað ertu með á hausnum?"




Og svo partur af hinum föngulega hóp sem kallaðist námskeið eitt.. Enda vorum við númer eitt, langskemmtilegust, með besta kennararnn, með laangmestu lætin en á sama tíma með langbesta árangurinn :)
Hér í lokin er svo hún dóttir mín hún Emma sem er jafnframt ljósmyndafyrirsæta í hjáverkum. Hér má sjá mína í bílbeltinu sínu á leið í sumarbústað.


Sjáumst hressar á laugardaginn. Ég hlakka til að sjá ykkur skvises:)

9 Comments:

Blogger Sigríður said...

Líst vel á þetta. Hlakka til að koma í mat :D

8:47 PM  
Anonymous Anonymous said...

Flottar myndir! Svaka skvísa :) já hlakka til á laug. bæjó í bilinu!

3:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

ps. af hverju er ein fluffan í buxum?

3:28 AM  
Blogger Dilja said...

i loves dem nize pix!

vá tinna, ég verð að fá að hitta þig e-n tíma í öllu átfittinu, og MEÐ hattinn!

hlakka til að koma og spiza á lau, og kannski hjálpa:) en emma verður svo deffenettlí knúsuð vel og mikið líka

8:17 AM  
Blogger Sigríður said...

Tinna hvernig væri að þú tækir bara á móti okkur í júníforminu á lau? P.S. Held ég sleppi Emmu knúsinu þó sæt sé.....
Þarftu ekki að vera framtíðarfluffa en ekki sumarfluffa til að fá að vera í buxum????

6:32 PM  
Anonymous Anonymous said...

hehe, framtíðarfluffa.. Nei nei maður gat fengið, einn kjól + einn pils eða buxur...
En já mun að sjálfsögðu taka á móti ykkur í úniforminu á laug, gefa ykkur heita klúta og vísa ykkur á útgönguleiðir áður en ég bind ykkur niður í stólana.

6:55 PM  
Blogger Dilja said...

BWAHAHHAHAHHA
og býður uppá kjúkling á pastasoði í álbakka er það ekki?

8:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

jú eða Gordon bleu sem hefur verið soðið í 10 tíma:)

5:51 PM  
Blogger Dilja said...

ó já baby baby!
jö-hömmí!
get ekki beðið ó nei ó nei...

7:23 PM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home