Wednesday, September 05, 2007

Langt síðan síðast!

Halló elsku HÁS systaz!
Ég ákvað að heilsa aðeins uppá ykkur, finnst svo langt síðan ég hef séð ykkur, hvað þá allar saman. Fer nú að styttast í miklar og mikilvægar breytingar hjá þessum myndarlega hóp, annað hvort kemur ein lítil HÁS systir eða einn lítill HÁS bróðir. Við bíðum spenntar, og ég hef nákvæmlega enga tilfinningu fyrir því hvort þetta sé þessa stundina.
Fór til USA um daginn og ætlaði að kippa með nokkrum uni-sex samfellum með fyrir pullann eða pulluna, en viti menn! Í landi frægð,frama og frelsis er ekki gert ráð fyrir því að fólk fái ekki að vita kynið á meðgöngu. Ég fann barasta ekkert sem hentaði báðum kynjum. Greip tildæmis í einn galla sem var brúnn og hvítur röndóttur og var svo ánægð, en nei; þá stóð skýrum stöfum: BABY BOY á framhliðinni. Eftir mikla leit fann ég þó nokkrar í GAP.

Annars er allt fínt að frétta af mér, haustið leggst mjög vel í mig. Þó svo að e-r lægð sé í mér, harka hana þó af mér með jákvæðu hugarfari og ævintýraleit par exelans. Vona ég:) Eftir 4 ár finnst mér mjög skrýtið að fara ekki af landinu á þessum tíma. Ég er ekki ósátt, enda hef ég verið mikið heima og finnst fínt að vera hérna, en auðvitað er maður smá lens.
Ég ætla þó að reyna að ferðast e-ð það sem af líður ári. Í nóvember ætlum við mæðgur til Californiu (San Fran og LA) og mér skilst að við förum líka aðeins til Mexíkó. Svo langar mig að hitta Team 11 krakkana mína á Julefrokost í desember í DK, þá ætla ég líka að versla e-ar jólagjafir.
En þangað til er það vinna vinna og mikil vinna. Þessi blessaða tónlistarhátíð er frekar umfangsmikil og ég held í nokkra tauma sem viðkoma henni. Svo langar mig að láta sjá mig í Laugum og svitna þar nokkrum sinnum í viku. Kílóin fjúka, en þó koma þó alltaf fljótt aftur. Ég ætla að halda mínu striki og vera komin í kjólinn fyrir jólin... bíddu er ég ekki alltaf í kjól samt?:)

Jæja, þetta er nú meira blaðrið hérna hahah. Takið mig til fyrirmyndar og bloggið eins og vindurinn! Vei vei!

Knús á línuna!
Diljá

Sunday, July 29, 2007

Litríkar og sætar


Tuesday, July 24, 2007

Takk fyrir komuna í Arnarklettinn!!

Helga Guðný bumbulína og Sigga Hugosdóttir

Ziggy og DillDillfríður og Baunamamma



Monday, July 16, 2007

HÁS-saumó/innflutningsklúbbur

Hæ hæ girlur

Hvað segiði um sveitaferð nk. fimmtudagskv?? Var að spá í að bjóða ykkur í Arnarklett 27 kl. 19:30 þennan dag.

Túrilú darlings!

Wednesday, July 04, 2007

Árshátíð

Er árshátíðin alveg dottin upp fyrir? Náum við ekki að finna neinn dag semsagt?
Tjah uss og svei segi ég nú bara...
Mikið er það nú leiðinlegt.

Kannski um jólin þá?

Thursday, June 28, 2007

Árshátið HÁS - taka 2

Eruði lausar laugardaginn eftir viku??

Monday, May 28, 2007

Hvítasunnudagurinn hjá HÁS






Já þetta var nú rosalega góður dagur hjá okkur stöllum. Hægt að sjá meira um daginn á blogginu hennar Maj-Britt. Hlakka til á árshátíðinni, þá verður líka Sara komin heim.