Wednesday, December 20, 2006

Litlu jólin hjá HÁS









Thursday, December 14, 2006

Lukka Valsdóttir


Kynni hér til leiks nýjan meðlim HÁS klúbbsins. Hún heitir Jökla Sól en mun von bráðar taka upp nafnið Lukka. Lukka er jafnframt sætasti meðlimur HÁS. Hana geta hinir meðlimir fengið að hitta strax á nýja árinu en hún flytur inn á Hraunbrún 12 þann 31.desember, að öllum líkindum á neðstu hæð óðalsins í hina nýuppgerðu íbúð ala Tinna og Valur.




Tuesday, December 12, 2006

Nýr meðlimur??

Ég frétti af nýjum meðlimi í Hás.... Lukku??? er það rétt? Hvenær fær maður svo að sjá nýju vinkonuna?

Thursday, December 07, 2006

Surprise jól????

Hó hó hó. Við Diljá vorum að ræða litlu jólin áðan (meðan Maj var í símanum, Tinna var of upptekin í vinnunni til að tala við okkur og Sara var á away) og við vorum að velta þeim möguleika fyrir okkur að hafa litlu jólin svona surprise jól. Þá mynduð þið leggja pening inn á reikninginn minn og ég myndi sjá um að versla í matinn og kaupa eitthvað skemmtilegt jólastúss fyrir okkur að dunda við um kvöldið. Þá væri það eina sem þið þyrftuð að gera er að mæta á svæðið á síðar ákveðnum tíma með pakka fyrir pakkaskiptin. Hvað finnst ykkur um þessa hugmynd?

Hás-systur









Monday, December 04, 2006

Sigga

fær svo marga plúsa núna. Takk fyrir símtalið í gær elskan mín!
Vona svo að skýrslulokin hafi gengið vel eftir það, ég sendi allavega strauma:)

Er annars þunn hérna á mánudagsmorgni, já svona er lífið í jólafríinu. Er á leið til Köben á eldheitt stefnumót með kærastanum mínum honum Súmó Helgasyni. Svo glóbal þessi elska, þrátt fyrir ungan aldur situr minn um borð í Express vél núna. Vona að hann orgi ekki né kúki mikið. Já rómantíkin, ó rómantíkin.
Drakk nokkur rauðvínsglös í gær og er svona lömuð núna. Uss maður er að eldast!

Elsku krúllur hafið það gott, nær og fjær.

Friday, December 01, 2006

Allnighter 4!!

Staðsetning: Höfðatorg
Athöfn: Lokaverkefni
Tími: 23:58
Geðheilsa: Einn lítill tveir litlir þrír litlir fingur....
Annað: Bráðum koma blessuð jólin...

Allnighter 3!!

Staðsetning: Höfðatorg
Athöfn: Lokaverkefni
Tími: 18:56
Geðheilsa: Aldrei verið betri!!
Annað: Mig laaaaaaangar í heeeeiiiiittttttt baaaaaaaað!!!!!!!

Allnighter 2!!

Staðsetning: Höfðatorg
Athöfn: Lokaverkefni
Tími: 05:10
Geðheilsa: Enn góð (merkilegt nokk)
Annað: 1.1.1 Almenn útboð

Almenn útboð eru opin öllum, þ.e. öllum er gerður kostur á að bjóða í verkið og er útboðið þá auglýst í fjölmiðlum. Í almennum útboðum er einungis verið að bjóða út framkvæmdina sjálfa en ekki hönnun og því skal hönnun fylgja með útboðsgögnum ásamt verklýsingum og skilmálum sem verkkaupi setur fyrir verkið. Í almennum útboðum er verkkaupa heimilt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Allnighter!!

Staðsetning: Höfðatorg
Athöfn: Lokaverkefni
Tími: 02:51
Geðheilsa: Góð
Annað: Ein ég sit og sauma......