Monday, March 26, 2007

Súkkulaðibaunin





Á efstu myndinni er súkkulaðibaunin bara 3 mm hehe... og sést ekkert eila, bara fósturpokinn. Ég á eftir að skanna inn nýjustu myndirnar, þær eru kúl sko. Annars er baunin í stuði og mjög mikill fimleikagarpur. Henni heilsast vel en gjörir móður sinni lífið leitt!





Tuesday, March 13, 2007

Náttfatapartý


Hæ elskurnar!

Ég vil bjóða ykkur í partý á Njálsgötunni. Eða náttfatapartý! Við verðum bara að finna kvöld og nótt þar sem fólk er laust og liðugt.
Ég legg til að við verðum í náttfötum og allir gista.
Borðum saman e-ð gott.
Horfum á kjéllingarmyndir/chick flicks.
Nöglum á okkur allar 10 neglurnar. Setjum á okkur andlitsmaska.
Og svo get ég fengið skemmtilegt spil lánað, svona "hversu vel þekkir þú vini þína...?"-spil.
Mjög vinsælt að fara á trúnó líka...

Hvernig líst ykkur á?

xxx
Diljá

Saturday, March 10, 2007

Tinna fluffa


Hér fyrir neðan (eða ofan,, hvar sem myndin lendir) má sjá Tinnu óákveðnu í fyrsta kjúklingafluginu sínu. Þar sem ég hef alla tíð verið mjög svo óákveðin og fengið leið á öllum vinnum,,, nema auddað Loftkastalanum þar sem ég ætla aldrei að hætta að vinna hjá,, þá þarf ég oft á tíðum að skipta um gír og gera eitthvað allt annað. Síðast var það Viðskiptafræðin,, jú jú tökum það, lærum hagfræði og stýrivexti, höfum engan áhuga en hey það er praktíst.. Þangað til auðvitað ég var komin með ógeð á sjálfri mér og þessu námi, fékk leið á því eins og flestu og hætti við..

Eins og er akkúrat núna er fluffan voða spennandi:) Ætla að prófa hana í sumar og sjá hvort ég finni veginn minn.. veit samt inní mér pínu hver hann er en þann veg hefði ég þurft að taka fyrir 10 árum... Kannski kemst þessi nálægt því... Allavega gaman að prófa..